Við hjá KILROY vinnum með frábærum tungumálaskólum um allan heim. Kennslan er til fyrirmyndar og félagslífið frábært. Á meðan á dvöl þinni stendur munt þú kynnast mikið af nýju fólki, bæta tungumálakunnáttu þína og upplifa fjölda ævintýra.
Fá fría ráðgjöf
Þú getur líka sameinað tungumálaskóla og ferðalag. Það eru t.d. margir sem byrja ferðalag um Suður Ameríku á því að læra spænsku í eina til tvær vikur til þess að geta spjallað við heimamenn og fengið meira út úr ferðalaginu sínu.
Margir vilja bæta enskukunnáttu sína og vinsælt er að fara í málaskóla í einhverri stórborg í Bandaríkjunum, t.d. New York & San Francisco, eða fara til Möltu svo hægt sé að liggja á ströndinni eftir að kennslu lýkur.
Við búum yfir áralangri reynslu af málaskólum svo ef þig vantar aðstoð við val á málaskóla skaltu endilega hafa samband við okkur.
Fá fría ráðgjöf