10 atriði sem þú ættir að muna þegar þú prúttar
1. Kannaðu reglurnar!
Byrjaðu á þvi að kanna hvort prútt sé almennt stundað í landinu og einnig hverjar reglurnar séu. Sumstaðar er hægt að lækka upphaflegt verð um 50% meðan í öðrum löndum er það ekki nema um 10%. Spurðu leigubílstjórann, hótelstarfsmanninn eða leiðsögumanninn!
2. Mundu eftir brosinu
Það á aldrei að vera leiðinlegt og erfitt að prútta. Þetta er samtal milli tveggja einstaklinga sem eru að leita að því verði þar sem báðir munu hagnast jafnt. Mundu þetta á næturmarkaðinum í Laos!
3. Gullna reglan: sá sem segir fyrsta verð tapar!
Látti sölumannin setja fyrsta verðið og bíddu þar til hann lækkar það áður en þú setur þitt. Mundu að sá sem segir fyrsta verð tapar! Ef það er sölumaðurinn þýðir það að þú munt aldrei borga meira og ef það ert þú þýðir það að þú munt aldrei borga minna. Gott ráð til að fá byrjunarverðið lægra er að virðast vera ólíkleg/ur til að kaupa vöruna.
4. Lærðu nokkur orð
Það er stór plús að geta sagt nokkur orð á tungumáli sölumannsins eins og tölurnar og „þetta er of dýrt“. Með því sýnir þú að þér er ekki sama um menninguna sem sölumaðurinn á líklega eftir að virða og um leið veita þér lægra verð. Lærðu nokkra frasa áður en þú ferð á markaðina á Indlandi.
5. Aldrei sýna peninga fyrr en verðið hefur verið samþykkt
Þetta ættu allir að vita! Ef þú sýnir veski fullt af stórum seðlum átt þú ekki von á góðum díl. Einnig er það ókostur að líta út fyrir að vera mjög ríkur. Reyndu því að takmarka sýnileika á öllum dýrum aukahlutum sem þú gætir haft meðferðis.
6. Þolinmæði, þolinmæði og þolinmæði!
Passaðu að þú hafir nægan tíma. Samningaviðræður geta tekið langan tíma og ef sölumanninum grunar að þú sért að flýta þér mun hann aðeins draga þær á langin sem endar oft með því að þú kaupir vöruna dýrari. Ekki flýta þér í gegnum góðar samningsviðræður og mundu að hafa gaman af þeim. Ef hann býður þér te segðu já og njóttu þess að kynnast honum og menningunni betur.
7. Byrjaðu lægra en þú myndir í raun borga
Þú verður alltaf að skilja eftir pláss fyrir samningaviðræður. Einnig með því að hækka verðið þitt sýnir það að þú ert til í að koma til móts við sölumannin. Prufaðu þetta á mörkuðunum í Morokkó! Einnig er sniðugt að vera með auka manneskju með sér einskonar bad cop, good cop! Þar getur þú fengið aðstoð við að sýna fram á hversu miklu þú mátt eyða.
8. Sýndu virðingu
Um leið og þú býður verð getur þú ekki tekið það til baka! Þetta er mjög mikilvæg regla sem fólk á til að gleyma. Ef þú hættir við eftir að sölumaðurinn samþykkir þitt setta verð ert þú að sýna honum mikla óvirðingu. Þú skalt því aðeins hefja samningaviðræður ef þú hefur raunverulegan áhuga á vörunni.
9. Þegar leiknum er lokið
Hversu lengi sem það tók að verða sammála um eitthvað verð ættu báðir aðilar að vera jafn ánægðir á endanum. Jafnvel þó að samningaviðræðurnar enduðu ekki á kaupum og sölu, þá skaltu einfaldlega þakka sölumanninum fyrir tímann hans.
10. Ef verðið er of hátt þá máttu fara
Aldrei hafa áhyggjur af því að þú hafir tekið of langan tíma frá sölumanninum eða drukkið of mikið te. Það gæti verið notað til að láta þig fá samviskubit yfir því að versla ekkert. Mundu að þetta er hluti af leiknum!