Austur eða vestur - allir vegir liggja til Fiji!
Fiji er fullkominn áfangastaður fyrir þá sem dreymir um hvítar sandstrendur, pálmatré, heitan sjó, litríka kórala, ferskar kókoshnetur og einstaka menningu. Eyjan er sannkölluð paradís sem er upplagt að heimsækja á leiðinni til Nýja Sjálands eða Ástralíu.
Fiji, sérstaklega Yasawa eyjarnar, er fullkominn áfangastaður ef þig dreymir um friðsælt frí á ströndinni. Að auki finnur þú þar marga frábæra afþreyingarmöguleika og nokkra af bestur snorkl- og köfunarstöðum heims.
Auðvelt er að ferðast um Fiji en þar sem landið samanstendur af um 333 eyjum er augljóst að eyjahopp er besta leiðin til þess að kanna landið! Þú getur bókað ýmsar mismunandi siglingar eða sett saman þína eigin ferð með hop-on/hop-off miða.
Hvenær er best að heimsækja Fiji?
Veðurfarið á Fiji er gott allt árið um kring. Þurra tímabilið er frá júní til september en þá er einnig háannatími ferðamanna. Ef þig langar að heimsækja Fiji þegar það eru færri ferðamenn þá mælum við með mars eða október betur þekktir sem „Fiji Time!” Frá maí tíl október er besti tíminn til að sjá djöflaskötur „Manta Rays”.
Þar sem Fiji er nokkuð langt í burtu frá Íslandi er tilvalið að bæta við nokkrum áfangastöðum. Það tekur t.d. ekki nema þrjár klukkustundir að fljúga þaðan til Nýja Sjálands. Hvernig lýst þér á að fara einnig í road trip ferð um Nýja Sjáland?
Hér fyrir neðan finnur þú spennandi reisu þar sem Fiji sem einn af áfangastöðum. Athugaðu að þessi reisa er aðeins uppástunga. Við sérsníðum ferðalög og heimsreisur alltaf að þörfum og löngunum hvers og eins en gefum þér að sjálfsögðu góð ráð um hvernig hægt er að gera reisuna þína eins hagstæða og þægilega og við mögulega getum. Bókaðu fund með ferðaráðgjafa okkar og byrjaðu að plana draumareisuna þína!