Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
✈️Heim - Evrópa (þú velur landið) - Singapore - Sydney // Brisbane - Nýja-Sjáland - Fiji - Hawaii - Kalifornía - New York - Heim
// = ferðast landleiðis á eigin vegum eða í skipulagðri ferð
Ath: Þetta er ekki ákveðin ferð með föstum brottfarardagsetningum heldur ferðatillaga. Það er undir þér komið hvort þú vilt fara í nákvæmlega þessa ferð, bæta henni við ferðina þína eða gera hreinlega eitthvað allt annað. Við getum hjálpað þér að sérsníða ferðina þína nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana.
3 orð lýsa Singapore vel: hagnaður, þróun og tækni. Saman gerir þetta Singapore að einni auðugustu og nútímalegustu borg Asíu. Við hjá mælum með að þú gefir þér nokkra daga í þessari mögnuðu stórborg ef þú hefur tækifæri til.
Stórborgin Sydney á eftir að heilla þig með sínu frábæra andrúmslofti og fjöldamörgu afþreyingarmöguleikum. Að auki finnur þú þar frábærar strendur þar sem þú getur notið sólarinnar og/eða skellt þér á surfnámskeið. Og ekki gleyma því að kanna Ástralíu. Frá Sydney getur þú skellt þér í skipulagða ævintýraferð, farið í húsbíla-ferðalag eða fjárfest í hop-on/hop-off rútupassa.
Já það er rétt - yfir 300 sólardagar á ári! Sólin, sjórinn og skemmtunin bíða þín í Brisbane. Búðu þig undir fullt af grillveislum á ströndinni með nóg af bjór og hressu fólki.
Einstök blanda af náttúru og spennu! Upplifðu stórkostlega náttúru Nýja Sjálands í road trip ferð og finndu hjartað hamast í fallhlífarstökki, flúðasiglingu eð jöklaferð. Vertu viss um að hafa nægan tíma - við mælum með að minnsta kosti þremur vikum.
Lokaðu augunum og ímyndaðu þér Fiji. Sérðu hvítar sandstrendur, pálmatré, kristaltæran sjó, fallega fossa og litríka kokteila? Þá hefur þú rétt fyrir þér. Fiji er hitabeltisparadís sem bíður einnig upp á fullt af spennandi ævintýaferðum og afþreyingarmöguleikum. Ekki missa af því kanna neðansjávarlífríkið í ævintýralegru snorkli og/eða köfunarferð!
Aloha! Hawaii er sannkölluð paradísareyja þar sem þú finnur frábærar strendur, eldfjöll, fjölbreyttan gróður og auðvitað einstakt fólk. Skelltu þér í skipulagða ferð með öðrum ævintýragjörnum einstaklingum og upplifðu allt það besta sem Hawaii hefur upp á að bjóða. Fullkomin endir á frábæru ferðalagi um heiminn!
Kalifornía er drauma áfangastaður þeirra sem dýrka sólina, hafið, ströndina og fallega fólkið. Að sýna sig og sjá aðra - það er það sem lífið snýst um í Kaliforníu.
Búðu þig undir öfga þegar þú sækir heim stærstu borg heims. New York býður uppá svo marga möguleika og spennandi hverfi að þú munt óska þess að þú þyrftir ekki að eyða tíma í svefn. Þar sem New York sefur aldrei geturðu farið að versla klukkan ellefu að kvöldi til og farið á næturklúbb klukkan tíu að morgni.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.