Langar þig til Maldíveyja en finnst þú þurfa að vinna í lottó til að komast þangað?
Það er alveg rétt hjá þér að það getur verið dýrt að ferðast til Maldíveyja, en það þarf ekki að vera eins dýrt og þú heldur. Hér eru nokkur tips um hvernig þú getur ferðast til Maldíveyja án þess að vinna í lottó!
1. Farðu á "lókal" eyjurnar
Besta ráðið til að lækka kostnað þegar ferðast er til Maldíveyja er að heimsækja lókal eyjarnar eins og Dangheti, Rasdhoo og Felidhoo, í stað hinna hefðbundnu orlofseyja. Þar er verðið lægra og þú færð einnig tækifæri til að kynnast heimamönnum. Þessar eyjar voru áður lokaðar fyrir ferðamönnum en undanfarin ár hafa yfirvöld smám saman létt af höftunum og þú getur nú heimsótt eins margar eyjar og þú vilt. Þökk sé margra ára höftum eru margar af þessum eyjum enn tiltölulega ósnertar þegar kemur að ferðamennsku og því er ekki óalgengt að maður fái þá tilfinningu að vera eini ferðamaðurinn á svæðinu.
2. Bættu Maldíveyjum við stærri ferð
Það er orðið mun ódýrara að fljúga fram og til baka til Maldíveyja, en hvers vegna ekki að bæta Maldíveyjum við sem stoppi í stærri ferð? Það þarf ekki endilega að kosta það mikið aukalega! Við höfum sett saman hið fullkomna kombó: Maldíveyjar og Sri Lanka.
3. Forðastu að ferðast á hápunkti ferðamannatímabilsins
Það er gott að vera á Maldíveyjum allt árið um kring. Hitastigið er um 30 gráður allt árið, svo forðastu að ferðast á hápunkti ferðamanntímabilsins (desember - apríl), þar sem verðið er hæst. Ferðastu í staðinn frá maí til nóvember, þegar ferðamenn eru færri og verðið lægra. Þú getur búist við meiri rigningu á þessu tímabili, en í staðinn eru öldurnar betri og dýralífið í kringum kóralrifin litríkara.
4. Ferðastu með ferjunum á staðnum
Flestir sem koma til Maldíveyja fljúga til Male og taka síðan innanlandsflug eða hugsanlega hraðbáta til hinna eyjanna. Hins vegar getur þú sparað mikla peninga með því að hoppa á eina af ferjunum í staðinn. Ferjurnar eru ekki fljótlegasti valkosturinn en í staðinn færðu fína bátsferð með kaupunum!
5. Slepptu dýrum lúxushótelum
Ef þú ert að reyna að ferðast ódýrt þá velur þú að sjálfsögðu ódýra gistingu og þú munt ekki finna hana á stóru lúxushótelunum. Gistu í staðinn í einu af mörgum litlum gistiheimilinum í eigu heimamanna sem hafa sprottið upp á Maldíveyjum undanfarin ár. Hér getur þú fengið gistingu sem er brota brot af verði lúxushótela og þér verður vel tekið af gestgjafanum og fjölskyldu þeirra. Að gista á þennan hátt mun ekki aðeins gera dvöl þína ódýrari, það mun einnig gefa þér ekta upplifun af Maldíveyjum.
6. Prófaðu dýrindis sjávarréttina á staðnum
Annar ávinningur af því að vera á gistiheimilum á staðnum er að þú færð tækifæri til að prófa ekta lókal mat og við getum lofað þér einu; það er ótrúlegt! Flest gistiheimilin eru með máltíðir innifaldar í verðinu og venjulega verður þér boðið upp á ferskt sjávarfang sem þú borðar með fjölskyldu eigandans. Bæði gott og félagslegt! Ef maturinn er ekki innifalinn þar sem þú býrð og þér finnst þú vera svolítið ævintýralegur geturðu farið niður á ströndina þegar veiðimennirnir koma á land með aflann í dag. Þú getur búist við svolítlum samningsviðræðum, en ef þú ert góður geturðu fengið virkilega ódýran kvöldverð!
7. Farðu að snorkla á eigin spýtur
Margir halda að þú þurfir að vera með bát til að komast til flottra snorklstaða, en á Maldíveyjum er svo margt frábært að sjá neðansjávar að þú getur auðveldlega snorklað frá ströndinni. Flestar gistingar á Maldíveyjum lána snorklabúnað ókeypis, en það kostar ekki mikið að kaupa þinn eigin.
Viltu hjálp við að skipuleggja ferð til Maldíveyja sem hentar þínu budgeti?
Skrifaðu okkur og við veitum þér fría ferðaráðgjöf fyrir ferðalagið þitt til Maldíveyja.
Fá fría ráðgjöf