Langar ykkur að upplifa sól, hvítar strendur og aðra menningu í brúðkaupsferð ykkar?
Þá er þessi tveggja vikna KILROY brúðkaupsferð til New York og Mexíkó tilvalin fyrir ykkur! Í henni getur þú slappað af á ströndinni, snorklað, skoðað Chichen Itza, farið í siglingu til Isla Mujeres og borðað alvöru mexíkóskan mat. Lestu áfram til að vita meira um ferðina og mundu, þetta þarf ekki endilega að vera brúðkaupsferð!
NEW YORK NEW YORK!
Hvar er betra en að byrja brúðkaupsferð í borginni sem aldrei sefur! New York býður upp á ótal möguleika og spennandi hverfi eins og Soho og Greenwhich Village. Þar sem New York sefur aldrei getur þú farið að versla klukkan ellefu að kvöldi til og farið á næturklúbb klukkan tíu að morgni.
Hér hefst ferðin og er dvalið í tvær nætur áður en flogið verður áfram til Cancún í Mexíkó þar sem sólarsælan hefst.
MEXÍKÓ
Mexíkó er fullkominn áfangastaður fyrir brúðhjón sem vilja fara í rómantíska brúðkaupsferð. Þar er meðal annars að finna sól, hvítar strendur, tæran sjó, skemmtilega menningu, flott hótel, gott verðlag, köfunar- og snorklstaði í heimsklassa og nýjar upplifanir.
Það er þess vegna sem það er tilvalið að fara í KILROY brúðkaupsferð til Mexíkó þar sem bæði er hægt að slappa af og upplifa eitthvað nýtt í landinu.
Ef þið viljið upplifa alvöru lúxus á meðan dvalið er í Mexíkó getum við til dæmis bókað ykkur á frábært 4 og 1/2 stjörnu hótel alveg við ströndina og Karíbahafið, með öllu inniföldu en einnig getum við fundið aðrar gistingar sem henta ykkar betur. Í sólarsælu brúðkaupsferðinni í Mexíkó er einnig skroppið í tvær spennandi dagsferðir.
Dagsferð til Isla Mujeres
Í Mexíkó er tilvalið að nýta tímann og kanna staði sem eru alveg framandi þeim sem við þekkjum á Íslandi. Þá er tilvalið að halda af stað í dagsferð til paradísareyjunnar Isla Mujeres.
Þegar haldið er til eyjunnar er mikilvægt að muna eftir sundfötunum og sólarvörninni! Isla Mujeres er mexíkósk eyja í Karíbahafinu sem er um 13 kílómetrum frá ströndinni í Cancún. Eyjan er þekkt fyrir fallegar strendur og frábæra snorkl og köfunarstaði. Þar er líka hægt að finna verndunarsvæði fyrir skjaldbökur svo það er aldrei að vita nema maður komi auga á eina slíka þegar farið er þangað!
Dagsferðin hefst með siglingu frá Cancún til eyjunnar. Í siglingunni er hægt að njóta útsýnisins um Karíbahafið en þegar á eyjuna er komið tekur við hlaðborð og opinn bar. Á eyjunni er síðan tilvalið að rölta um gamlar götur, snorkla eða bara slappa af á fallegri strönd. Þessi dagsferð mun vera ótrúleg upplifun í brúðkaupsferðinni.
Dagsferð til Chichen Itza
Chichen Itza ættu nú margir að kannast við en það eru heimsfrægar fornar rústir Maya indíána og eru eitt af sjö undrum veraldar! Svæðið er mest heimsóttasta fornleifasvæði í Mexíkó enda magnað að sjá rústirnar með eigin augum.
Í þessari brúðkaupsferð er því að sjálfsögðu innifalin dagsferð til Chichen Itza þar sem rústirnar eru skoðaðar. Ferðast er frá Cancún til Chichen Itza þar sem enskumælandi leiðsögumaður mun fylgja ykkur og hópnum sem þið ferðist með fyrir svæðinu. Skoðunarferð hingað er algjörlega ómissandi ef ferð til Mexíkó er á dagskrá.
KILROY BRÚÐKAUPSFERÐ
KILROY býður upp á fjölda brúðkaupsferða fyrir nýgift hjón, hvort sem þau vilja fara í kraftmikla brúðkaupsferð þar sem reynt er á líkamlegt þol, menningarlega brúðkaupsferð þar sem hjónin kynnast nýrri menningu eða rómantíska brúðkaupsferð þar sem slappað er af á ströndinni og hjónin njóta þess að eyða tíma með hvort öðru.
Við getum sérsniðið drauma brúðkaupsferðina alveg eftir höfði brúðhjónanna. Við höfum líka sett saman nokkrar tillögur að frábærum brúðkaupsferðum sem ættu að geta veitt góðan innblástur. Þar má meðal annars finna nákvæmlega þessa brúðkaupsferð sem við erum búin að fjalla um hér.