Frönskuskólar
Langar þig að læra tungumál ástarinnar, frönsku? Við bjóðum upp á frönsku námskeið í París, höfuðborg Frakklands og í Nice sem er einnig þekkt sem gimsteinn Miðjarðarhafs strandarinnar.
Staðsetningar
Hér getur þú séð hvar þú getur farið í frönskuskóla:
- Frakkland
- París
- Nice
Málaskóli í PARÍS
París er ein glæsilegasta borg í heimi. Borgin er oft kölluð höfuðborg Evrópu þegar kemur hátísku iðar af lífi og menningu. Þú getur skoðað borgina frá Eiffel Turninum, farið í rómantíska siglingu á Signu, upplifað hönnuna og hátískuna eða æft frönskuna á götulistamönnunum í Montmartre.
EF skólinn í París er sérstaklega heillandi, skólinn er ofarlega á Les Grand svæðinu í hjarta Franskrar menningar. Andrúmsloftið í skólanum er í anda stórborgarinnar og auðvelt er að skoða gersemar borgarinnar þar sem skólinn er nálægt "metro".
"Ég hugsa að frábært sé ekki nægilega sterkt orð til að lýsa veru minni hérna. En jú, það er alveg æðislegt hérna. Ég sé mest eftir því að hafa ekki valið það að taka fleiri tíma, en það gefur mér svo sem meiri tíma til að skoða borgina, sem er frábær."
Skólinn er tæknilega vel búin og býður úrvals kennslu fyrir byrjendur sem lengra komna.
Skólinn býður undibúning fyrir DELF og DALF.
Gisting í París
Nemendur geta valið að búa hjá fjölskyldum sem eru sérstaklega valdar af starfsfólki EF. Þeir sem búa hjá fjölskyldu taka þátt í daglegu lífi fjölskyldunnar og kynnast þannig betur menningu landsins og þjóð. Hjá fjölskyldu er hægt að óska eftir því að vera einn í herbergi eða deila herbergi með öðrum nema. Þú getur einnig óskað eftir gistingu á stúdentagörðum, þar sem þú getur verið í eins manns herbergi eða deilt herbergi með öðrum nema. Nemar af sama þjóðerni gista ekki hjá sömu fjölskyldu eða í sama herbergi nema sérstaklega sé óskað eftir því.
Fæði: Nemar sem gista hjá fjölskyldu eru í hálfu fæði, morgunmat og kvöldmat alla virka daga en fullt fæði um helgar. Nemar sem gista á stúdentagörðum eru ekki í fæði.
Brottfarir: Flest námskeið byrja alla mánudaga og gisting er frá sunnudegi. Námskeiðin eru frá 2 vikum upp í 52 vikur.
Móttaka á flugvelli við komu Nemendur geta óskað eftir að láta fulltrúa skólans sækja sig á flugvöllinn.
Málaskóli í Nice
Nice er í suður hluta Frakklands, nánar tiltekið á Frönsku Rivierunni og er einn helsti áfangstaður þeirra ríku og frægu. Þangað kemur fólk til að teyga sólskinið á ströndinni, borða úti og rölta um göturnar.
Skólinn er í nokkra mínútna göngufjarlægð frá Rue de France þar sem allt getur gerst.
Skólinn býður undibúning fyrir DELF og DALF.
Gisting í Nice
Nemendur geta valið að búa hjá fjölskyldum sem eru sérstaklega valdar af starfsfólki EF. Þeir sem búa hjá fjölskyldu taka þátt í daglegu lífi fjölskyldunnar og kynnast þannig betur menningu landsins og þjóð. Þú getur einnig óskað eftir gistingu á "youth hostel", sem er í grennd við skólann. Hjá fjölskyldu er hægt að óska eftir því að vera einn í herbergi eða deila herbergi með öðrum nema. Á "youth hostel" er herberg deilt með einum til tveimur nemum. Nemar af sama þjóðerni gista ekki hjá sömu fjölskyldu eða í sama herbergi nema sérstaklega sé óskað eftir því.
Fæði: Nemar sem gista hjá fjölskyldu eru í hálfu fæði, morgunmat og kvöldmat alla virka daga en fullt fæði um helgar. Nemar sem gista á "youth hostel" fá morgunmat en geta keypt hádegis- og kvöldmat á veitingastað sem er á gistiheimilinu.
Brottfarir: Flest námskeið byrja alla mánudaga og gisting er frá sunnudegi. Námskeiðin eru frá 2 vikum upp í 52 vikur.
Móttaka á flugvelli við komu Nemendur geta óskað eftir að láta fulltrúa skólans sækja sig á flugvöllinn.