Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Þegar þú lendir munt þú verða sótt/ur á flugvöllinn og skutlað til Tableview þar sem þú munt dvelja næstu tvær vikurnar. Þegar þú kemur verður kynningarfundur fyrir þig og aðra sjálfboðaliða, þar sem þú færð einnig litla tösku með bol, lítilli bók og símkorti. Um kvöldið er síðan grillveisla (braai).
Daginn eftir kannar þú Höfðaborg með leiðsögumanni. Eftir skipulögðu ferðina getur þú til dæmis skoðað Höfðaborg betur, rölt um markaðina, tekið rútu til Victoria & Alfred Waterfront eða tekið kláf upp Table Mountain.
Sem sjálfboðaliði starfar þú fimm daga vikunnar frá mánudegi til föstudags. Á mánudögum er skrifstofuvinna fyrir bæði nýja og eldri sjálfboðaliða. Þá fá nýir sjálfboðaliðar þjálfun um verkefnið og kennslu á því sviði sem þeir munu starfa við. Eldri sjálfboðaliðar munu hjálpa til við að skipuleggja vikuna, halda við búnaði ásamt öðru.
Suma daga munu sjálfboðaliðar vinna fulla 8 klukkustunda daga en aðrir dagar geta verið styttri, eða um 4-5 klukkutímar. Það fer allt eftir því hvað verkefnið þarf. Vinnutímar eru vanalega frá 9:00 á morgnana til 15:00.
Morgnarnir fara í það að aðstoða hjá skólunum en á eftirmiðdögum er sjálfboðaliðunum skipt í þrjá hópa þar sem hver hópur sér um annað hvort surf, hjólabretti eða sundið þessa vikuna. Sjálfboðaliðar fá einnig tækifæri til að læra að surfa af reyndum surfkennara. Sú kennsla fer fram á föstudögum án krakkana.
Sjálfboðaliðar fá klukkutíma surfkennslu í hverri viku á föstudeginum. Einnig er hægt að bóka meiri surfkennslu fyrir aukakostnað. Ef þú bókar auka surfkennslu munt þú fara í fyrsta tímann þinn á fyrsta sunnudeginum (degi 3). Kennslan er 4 klukkutímar. Önnur kennslan fer fram á næsta sunnudegi (degi 10). Sú kennsla er 2 klukkutímar
Eftir surfkennsluna á föstudeginum getur þú dvalið lengur á ströndinni og æft þig eða skoðað þig um í Höfðaborg áður en allir hittast um kvöldið.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.