Lengd

16 dagar

Áfangastaðir

Kalifornía, Arizona, Utah og Nevada

Tegund ferðalags

Bakpokaferðalag

Innifalið í verði

Flug, surfbúðir og ævintýraferð

Verð frá 630,000 ISK
Ef þig dreymir um að skoða fullt af flottum stöðum í vesturhluta Bandaríkjanna, eins ogLos Angeles, Grand Canyon, Zion National Park og Sin City, Las Vegas, bara svo eitthvað sé nefnt, þá er þetta ferðáætlunin fyrir þig!

Farðu um borð í flugvélina sem tekur þig alla leiðina til stærstu borgar Kaliforníu, Los Angeles. Eyddu nokkrum dögum í L.A. áður en þú ferð í surfbúðir í Dana Point. Ef þú vilt skoða L.A., láttu okkur þá vita því við erum í samstarfi með virkilega flottu hosteli á Venice Beach!

Næsta stopp er Dana Point þar sem við höfum skipulagt 7 daga dvöl í surfbúðum, þar sem þú munt læra að surfa eins og atvinnumaður. Á daginn reynir þú að ná tökum á brettinu en getur slappað af í búðunum á kvöldin - helst með kaldan drykk við hendina.

Með nýju kunnáttuna þína er kominn tími til að halda áfram. Næst tekur við 8 daga ævintýraferð með öðrum bakpokaferðalöngum. Þú ferð frá Los Angeles til  Joshua Tree þjóðgarðsins, síðan Grand Canyon, smábæjarins Page, síðan í gegnum bæði Zion þjóðgarðinn og Bryce þjóðgarðinn áður en þú endar í Las Vegas, einnig þekkt sem Sin City. Hér getur þú látið reyna á spilavítin (ef þú hefur náð lögaldri) eða kíkt út á lífið. Ferðinni lýkur hér og þú flýgur heim frá Las Vegas.

Mundu að þetta er einungis dæmi og þú getur sérsniðið þessa leiðartillögu að þínum þörfum og óskum! Viltu kannski stytta dagafjöldann? Viltu kannski ferðast meira? Við höfum nóg af valmöguleikum fyrir þig, hafðu samband við okkur!

*Byrjunarverð á mann, miðað við að tveir ferðist saman

alt

Hannaðu þína eigin ferð

Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:

  1. Þú setur upp draumaferðina þína.
  2. Við finnum bestu og hagstæðustu valmöguleikana.
  3. Þú færð persónulegt mat ferðasérfræðings.

Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!

Byrjaðu að hanna þína ferð

Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText

Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.