Gaborone er ekki nafli alheimsins eða vinsælasti áfangastaður jarðar, en borgin er samt sem áður frábær staður til að hefja ferðalag þitt um Afríku og Botsvana. Þar er tilvalið að slaka aðeins á áður en þú heldur á vit ævintýranna sem leynast hvarvetna í næsta nágrenni borgarinnar!
Það besta sem Gaborone hefur upp á að bjóða
Gaborone er frekar lítil höfuðborg á heimsmælikvarða. Þar er samt nóg af spennandi hlutum að upplifa og sjá áður en þú heldur til nærliggjandi þjóðgarða og slétta. Þú ættir m.a. að skoða Gaborone Game Reseve og Orapa House þar sem demantar frá demantanámunni í Jwaneng, sem er sú stærsta í heimi, eru flokkaðir og verðlagðir. Við mælum einnig með því að skoða National Museum & Art Gallery sem hefur að geyma uppstoppuð dýr og ýmis minjar sem hafa mikið menningarlegt gildi fyrir þennan hluta Afríku.
Gisting í Gaborone
Það er mjög ódýrt að gista í tjaldi á Mokolodi friðsvæðinu sem er einungis 12 km suður af Gaborone. Ef þú kýst heldur að vera inni í borginni þá finnur þú ódýra og frábærlega staðsetta gistingu miðsvæðis. Við ráðleggjum þér að bóka gistingu í Gaborone, sem og annars staðar í Botsvana, áður en þú leggur af stað í ferðina þína.
Áhugaverðir staðir nálægt Gaborone
Við mælum með að þú heimsækir þorpið Odi sem er í næsta nágrenni Gaborone, en þar selja heimamenn ýmis vefnaðarvörur, t.d. púða og teppi. Þetta er tilvalinn staður til að sjá hvernig þessir hlutir eru búnir til og til þess að kaupa fallega og einstaka hluti á mjög sanngjörnu verði.
Önnur áhugaverð þorp eru Mochudi, Molepolole og Thamaga sem eru dæmigerð og heillandi Afrísk þorp þar sem veggir og vegir eru búnir til úr leðju og steini.
Besti staðurinn í Botswana til að sjá villt dýr er Mokolodi friðsvæðið þar sem þú getur tjaldað eða gist í skála. Í friðlandinu geturðu séð gíraffa, fíla, flóðhesta, sebrahesta, buffalóa, ljón o.fl.