Naíróbí er afskaplega fjölbreytt borg, sem ekki má gleyma að skoða þegar ferðast er um Afríku. Næturklúbbarnir eru í vestrænum stíl, barir og veitingastaðir í miðbænum eru umkringdir skýjakljúfum og rétt utan við borgina færð þú tækifæri til að kanna fjölbreytt dýralíf. Borgin er staðsett í 1500 metrum yfir sjávarmáli sem gerir það að verkum að hitastigið á daginn er þægilegt en næturnar geta verið kaldar.
Dýralífið rétt utan við borgarmörkin
Naíróbí þjóðgarðurinn byrjar þar sem borgin endar og færð þú þar tækifæri til að sjá nokkur af vinsælustu dýrum jarðar. Einnig er það algerlega þess virði að heimsækja bæði friðlýsta skógarsvæðið Ngong Road Forest Sanctuary og Rhino and Elephant Orphanage sem er hæli fyrir munaðarlausa nashyrninga og fílsunga.
Saga og menning Keníu
Hefurðu áhuga á að heyra um nýlendutímann? Þá skaltu fara í dagsferð og heimsækja til dæmis Norfolk hótelið, Karen Blixen safnið (manstu eftir kvikmyndinni Out of Africa?) og þjóðminjasafn Keníu. Heimsókn til "Bomas of Kenya" mun einnig gleðja þig. Svæðið er ferðamannasvæði sem var stofnað árið 1971 í þeim tilgangi að varðveita og efla fjölbreytt menningarverðmæti ólíkra ættbálka í Keníu. Hér færð þú einnig tækifæri til að fylgjast með þjóðardönsum og öðrum siðum og venjum áttbálkanna.
Heimsæktu úthverfin!
Ef þig langar til að komast út fyrir iðandi mannlífið í miðborginni þá getur þú tekið "matatu" og ferðast aðeins út fyrir annasömustu svæði Nairobi. Heimamenn eru í eðli sínu afar rólegir og því er tilvalið að fara inná nálægan veitingastað, taka því rólega og panta "Nyama Choma".
Hafðu þó í huga að Nairóbí er þekkt fyrir háa glæpatíðni. Því er mikilvægt að vera á varðbergi allan tímann, sérstaklega ef þú ferð út að kvöldlagi.
Kannaðu Keníu
Naíróbí er kjörinn byrjunarreitur fyrir bakpokaferðalag um Keníu. Upplifðu heim dýranna í ævintýralegu safarí, gakktu upp á Mount Kenya, láttu gott af þér leiða í frábæru sjálfboðaverkefni eða farðu í ævintýralega ferð með öðrum ævintýraþyrstum ferðalöngum alls staðar að úr heiminum.