Í hinni líflegu Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu, finnur þú áhugaverða blöndu af fornri sögu og nýrri þróun. Borgin er hún mikilvægasta fjármála-, sögu- og menningarmiðstöð landsins. Árið 1920 var hún kölluð Perla Asíu en það var fyrir hið ofbeldisfulla nýlendutímabil og tímabil rauðu kmeranna.
Friðsæl hof og fornir helgimunir
Þú átt eftir að finna fjölmörg reykelsisfyllt hof (wat) í Phnom Penh en á meðal þeirra er Wat Moha Ounalom og Wat Phnom. Wat Ounalom var byggt árið 1443 og er svokallað föðurland búddista. Ef þú ert fyrir forna helgimuni, farðu þá að bænahúsinu sem er á bakvið aðalbygginguna en þar finnur þú brot af augabrún Búdda. Wat Phnom er friðsælt hof og fallegur staður til þess að skoða.
Þjóðminjasafn Kambódíu er staðsett í PH 13 Central Phnom Penh. Byggingin sjálf er gerð með hefðbundnu móti og við hana finnur þú einnig fallegan garð. Safnið geymir nokkra af bestu kmerastyttum í landinu. Þú getur einnig séð varðveitta menningu kmeranna í Silver Pagoda sem er staðsett á Samdech Sothearos Blvd. Búddastytturnar þar eru ótrúlegar en þær eru gerðar úr skíragulli og þaktar þúsundum ekta demanta.
Killing Fields
Hið fræga hvíta bænahús, stupa, er mikilvægur minnisvarði fyrir hið dimma tímabil rauðu kmeranna; Killing Fields. Húsið stendur á fjöldagröf þeirra, þúsundi manna, sem týndu lífi sínu á þessu tímabili. Athugaðu að Killing Fields er ekki fyrir viðkvæma.
Hvernig er best að komast á milli staða í Phnom Penh?
Það er almennt ekki erfitt að rata í Phnom Penh og frekar auðvelt að komast á milli staða með því að leigja hjól eða mótorhjól (cyclos). Þú getur tekið tuk-tuk sem þú finnur alls staðar í borginni.
Auðvelt er að ferðast til annarra áfangastaða í Kambódíu með rútum eða lestum. Athugaðu að lestarnar fara mun hægar yfir en rúturnar.
Hvenær er best að ferðast til Phnom Penh?
- Þú getur búist við hitabeltisregntímabili frá maí/júní til október
- Frá febrúar til maí er mjög heitt.
- Frá nóvember til janúar er yfirleitt aðeins minni raki og hiti, miða við aðra mánuði ársins.
Okkar ráð!
Phnom Penh er frábær staður til þess að fagna kínverska nýárinu sem er haldið hátíðlegt í lok janúar eða byrjun febrúar. Á þessum tíma eru mikil hátíðarhöld um allt og fylla drekadansarar göturnar.