Krabi er á suð-vesturströnd Tælands og er umkringt stórum kalksteinsklettum. Við þetta litla fiskiþorp liggur mikilvæg höfn þaðan sem ferjur fara til Koh Lanta, Koh Phi Phi og stranda Ao Nang. Þetta er frábær staður fyrir þá sem stunda klettklifur og ef þig langar til Krabi þá getur KILROY hjálpað þér að skipuleggja ferð.
Að gera og sjá á Krabi
Eitt af aðal aðdráttaröflum Krabi eru kalksteins tvíburaklettarnir Kanap Nam sem standa eins og tveir verðir, sitt hvorum megin við ána. Krabi er líka einn af fáum stöðum í Tælandi sem bjóða upp á klettaklifursferðir. Klifrarar allstaðar að úr heiminum koma hingað til að skora á þessa kalksteins risa. Orðrómur segir að aðeins í suður Frakklandi sé sambærilega erfitt að klifra og á þessu svæði.
Matur og drykkur í Krabi
Í Krabi er næturmarkaður með gómsætum og ódýrum hefðbundnum mat staðarins, með sterkum múslimskum áhrifum. Annar markaður sem er heimsóknar virði er morgunmarkaðurinn. Komdu snemma, hann lokar klukkan 8 að morgni!
Veðurfar í Krabi
Í Krabi er hitabeltisloftslag þar sem meðalhiti á daginn er um 33 gráður og mikill raki. Mest er regnið á monsoon tímabilinu milli maí og október.
Samgöngur í og við Krabi
Flestir taka lest eða rútu til Krabi frá Bankok eða Phuket, en þú getur líka flogið beint á alþjóðlega flugvöllinn í Krabi sem liggur bara 10 km frá borgarmörkunum. Krabi liggur að ströndinni sem gerir það að verkum að það er mikið af samgöngum á svæðinu á bátum. Annars er auðvelt að komast á milli á leigubílum eða bílaleigubílum.