Yucatan skaginn og svæðið umhverfis Cancun er vinsælasta ferðamannasvæði Mexico. Ævintýramennska þrífst vel á þessu fallega svæði og það er einnig fullkominn áningarstaður fyrir bakpokaferðamenn.
Cancun og hinn gullfallegi Yucatan skagi bjóða upp á einhverjar fallegustu strendur í Mexíkó og einhverjar dýrðlegustu náttúruupplifanirnar. Þar að auki má finna menningarlegar- og sagnfræðilegar rústir frá tímum Maya menningarinnar.
Náttúran á Yucatan skaganum er öðruvísi en annarsstaðar í Mexico; svæðið einkennist af stærðarinnar regnskógum og meðfram ströndinni má finna yndislegar, ósviknar pálmastrandir. Náttúrulegt gnægtarborð sem laðar að sér ótal ferðamenn á ári hverju.
Cancon – ný og vinsæl standparadís
Flestir sem heimsækja Yucatan skagann halda sig nærri Cancun. Cancun er tiltölulega ný borg, stofnuð seint á sjöunda áratugnum. Ætlunin var að skapa borg sem lagði áherslu á náttúruna og umhverfið. Með öðrum orðum: sjálfbær ferðaþjónusta. En Cancun varð á endanum miklu meira en það og í dag hefur ferðamennska á svæðinu vaxið fram úr villtustu væntingum manna.
Cancun fyrir bakpokaferðamenn
Cancun er án nokkurs vafa tilvalinn staður fyrir bakpokaferðamenn. Þú vilt kanski ekki eyða mörgum vikum eða mánuðum þar, en líflegt andrúmsloftið, strendurnar og næturlífið eru framúrskarandi. Bæði ferðamenn og Mexíkanar flykkjast til Cancun vegna þess að þessi hluti Mexico er sólríkur og framandi, strandlífið er frábært og peningarnir endast lengi.
Að sjá og gera í Cancun
Cancun er frægast fyrir heillandi strandlífið, en auk þess eru hinar heimsfrægu rústir fornu Maya borgarinnar Chichen Itza bara nokkurra klukkutíma akstur frá borginni. Staðurinn er vel ferðarinnar virði og er hægt að fara þangað í dagsferð. Þar hefur þú tíma til að kynnast þessum menningarminjum Mayana sem er eitt sjö undrum nútíma heimsins.
Veðrið í Cancun
Í Cancun er hitabeltisloftslag allt árið svo þú getur búist við raka og hita og þarft að passa að drekka nóg af vatni. Passaðu þig líka á sólinni – það er nauðsynlegt að nota sólarvörn á þessu svæði, þar sem hitinn fer sjaldan undir 22°C, meira að segja á næturnar.