Fáðu allt að 35% afslátt af hópferðum um allan heim!
Í tilefni af black friday tókum við saman fjórar af okkar allra uppáhalds ferðum sem eru á frábærum afslætti þessa dagana, en í ár bjóðum við allt að 35% afslátt af yfir 500 hópferðum um allan heim! Tilboðið gildir ef þú bókar einhverjar af þessum 500 ferðum á dögunum 26.nóvember - 2. desember 2019 svo hafðu samband við okkur til að athuga hvort að ferðin sem þig langar í sé á afslætti á þeim tíma sem þú vilt ferðast!
Hafa samband
Kambódía og Víetnam - 20 dagar
Ef þig langar að upplifa það helsta í Kambódíu og Víetnam þá er þetta ferðin fyrir þig. Hún mun taka þig frá iðandi götum Bangkok, til fallegra hofa, hvítra stranda og alla leiðina til Hanoi. Þú munt upplifa söguna í Angkor Wat og ganga eftir götunum í Ho Chi Minh City. Síðan má ekki gleyma hellaskoðunini í Phong Nha-Kẻ Bàng þjóðgarðinum ásamt mörgu öðru!
Verð frá: 147.700 ISK (með afslætti)
Þú sparar: 20-25%
Ferðatímabil: Janúar-apríl 2020
Ég vil vita meira
Eyjahopp á Galapagoseyjum - 9 dagar
Ef Galapagoseyjar eru ekki nú þegar á „bucket“ listanum þínum þá verða þær það eftir að þú hefur lesið um þetta magnaða eyjahopp! Þessar friðsælu eldfjallaeyjar eru meðal allra bestu staða í heiminum til að upplifa villt dýralíf og komast í mikla nánd við sæljón, risa skjaldbökur, Iguana-eðlur, mörgæsir, flamingóa og margar fleiri dýrategundir.
Verð frá: 157.360 ISK (með afslætti)
Þú sparar: 20-25%
Ferðatímabil: Janúar og apríl 2020
Ég vil vita meira
Indókína - 30 dagar
Upplifðu það besta sem Suðaustur-Asía hefur upp á að bjóða með öðrum bakpokaferðalöngum í ógleymanlegri 30 daga ferð. Þú munt ferðast til Kambódíu, Víetnam, Laos og Tælands. Upplifðu sögu, bæði nýlega og forna þegar þú heimsækir Angkor Wat. Gangtu um fjölfarnar götur og upplifðu iðandi næturlíf. Innifalið eru samgöngur og gisting svo þú getur einbeitt þér að þeirri afþreyingu sem vekur áhuga þinn og það með öðrum ferðalöngum sem eru á sama aldri og þú.
Verð frá: 220.360 ISK (með afslætti)
Þú sparar: 20-25%
Ferðatímabil: Janúar og apríl 2020
Ég vil vita meira
Sri Lanka: Spice Gardens & Seasides - 12 dagar
Sri Lanka hefur lengi verið uppáhalds áfangastaður bakpokaferðalanga og það er ekki af ástæðulausu! Í þessari frábæru 12 daga ferð upplifir þú Sri Lanka þar sem þú munt meðal annars skoða rústir, teakra, spice gardens og slappa af á Hikkaduwa Beach. Svo vertu viss um að pakka með þér sundfötunum!
Verð frá: 110.180 ISK (með afslætti)
Þú sparar: 20-25%
Ferðatímabil: Janúar - apríl 2020
Hafðu samband við okkur til að athuga hvort að ferðin sem þig langar í sé á afslætti á þeim tíma sem þú vilt ferðast.
Hafa samband