Ef þú villt upplifa eitthvað alveg nýtt en ekki ferðast of langt í burtu frá Íslandi þá er ferð um Balkanskaga eitthvað fyrir þig. Svæðið státar af ótrúlegri náttúru og skemmtilegri matargerð sem er innblásin af mörgum mismunandi þjóðum og trúarbrögðum. Þú finnur heillandi lítil fjallaþorp, fullt af ævintýramöguleikum og frábært kaffi á litlum notalegum kaffihúsum.
Fá meiri upplýsingar
Af hverju að fara í skipulagða ferð um Balkanskaga?
Í fyrsta lagi þá sparar þú þér mikinn tíma þegar kemur að því að skipuleggja ferðina þína. Í öðru lagi færðu að upplifa nokkrar af hápunktum Balkanskaga ásamt öðrum bakpokaferðalöngum sem koma allastaðar að úr heiminum.
Hver fer í skipulagða ferð um Balkanskaga?
Allir! Það er stutta svarið. Við sjáum bæði þá sem eru að ferðast sóló, pör og vini fara saman í þessar skipulögðu ferðir. Það sem allir eiga sameiginlegt er þó forvitni og ævintýraþrá.