Topp 10 áfangastaðirnir fyrir 2017
Dreymir þig um að kanna nýjar slóðir og upplifa einstök ævintýri, heimsækja stórbrotna áfangastaði og jafnvel prófa nýja og spennandi afþreyingu? Hér er listi yfir það sem við teljum heitustu áfangastaðina fyrir árið 2017!
1. Namibía
Namibía er eitt af fallegustu löndum Afríku. Landið er næstum tvöfalt stærra en Svíþjóð en hefur ekki nema um tvær milljónir íbúa sem þýðir að stór hluti af Namibíu er ósnortið landssvæði. Langar þig að sjá ljón, fíla, hýenur, sjakala, nashyrninga, villigelti eða gasellur í sínu náttúrulega umhverfi? Skelltu þér í ævintýralegt safarí og upplifðu heim dýranna með eigin skilningarvitum. Og ekki gleyma menningunni. Heimsæktu Himba Tribe og San Tribe ættflokkana og sjáðu hvernig þeir hafa lifað nákvæmlega eins í þúsund ár. Kannski lærir þú eitthvað nýtt!
2. Bólivía
Þrátt fyrir að Bólivía sé eitt af fátækustu löndum Suður-Ameríku þá er það ríkt af litríkri menningu og fjölbreyttu landslag - allt frá heitum og grænum fumskógum til kaldra Andesfjallanna. Þá er einnig gríðarlega margt að sjá og gera í Bólivíu. Kannaðu salteyðimörkina í Uyuni, heimsæktu Amazon frumskóginn, farðu í flúðasiglingu í Yungas, kannaðu dýralífið í Pantanal og skelltu þér í göngu um Cordilleras. Og ef þig langar að stíga út fyrir þægindarammann og upplifa adrenalínfullt ævintýri þá getur þú farið í hjólaferð niður Death Road - það er ef þú þorir!
3. Maldíveyjar
Maldíveyjar eru hreint út sagt ómótstæðilegar og draumaáfangastaður allt árið um kring. Landið byggist upp af 26 eyjum innan svæðis sem telur samtals 1192 eyjar, þar af 200 sem eru byggðar. Þar finnur þú hvítar silkimjúkar strendur, turkísbláan sjó, litríkt neðansjávarlíf og pálmatré. Og það besta er að þar er lítil úrkoma og hitastigið um 30°C alla daga ársins. Njóttu þess að snorkla um litrík kóralrif, lærðu að kafa, farðu í ævintýralegar siglingar, stundaðu jóga, smakkaðu bragðgóðan maldíveyskan mat og upplifðu magnaða menningu. Sannkölluð paradís sem allir verða að heimsækja einu sinni á lífsleið sinni.
4. Marokkó
Strendur, eyðimerkur, pálmatré, dramatísk fjöll og heillandi menning. Marokkó er land mikilla andstæðna! Þar finnur þú iðandi stórborgir með geðveikri umferð sem og lítil afskekkt þorp þar sem lífið hefur lítið sem ekkert breyst síðustu aldirnar. Í Marokkó færð þú fjölda tækifæra til að fara í ævintýralegar eyðimerkurferðir, læra að surfa, smakka bragðgóða rétti og upplifa magnaða menningu. Gerðu árið 2017 að einu því ævintýralegasta sem þú hefur upplifað.
5. Nepal
Snævi þaktir tindar Himalaya fjallanna, gönguleiðir sem eru bæði fallegar og hrikalegar, hof sem virðast gefa frá sér andlega orku, ævafornar venjur og svo margt fleira er það sem Nepal snýst um. Landið er afar töfrandi og reynist þeim sem heimsækja það einu sinni oft erfitt að snúa ekki aftur.
6. Jórdanía
Fljótlega eftir að þú kemur til Jórdaníu átt þú eftir að heyra kallað "Velkominn til Jórdaníu!". Jórdanir meta komu ferðamanna til landsins mikils og gestrisni þeirra er auðsjáanleg. Ungir og aldnir, ríkir og fátækir, hermenn, lögregla, hér munu allir taka á móti þér með bros á vör. Landið er lítið en hefur að geyma marga merkisstaði. Það er algjör möst að heimsækja Petru (eitt af sjö undrum veraldar) og fara í dagsferð til Dauðahafsins.
7. Kasakstan
Náttúran í Kasakstan er engri annarri lík. Ef þú elskar útivist og þráir ævintýri þá er Kasakstan áfangastaðurinn þinn! Þar finnur þú mögnuð gljúfur, glitrandi vötn og einstakt fjalllendi. Og ekki má gleyma menningu landsins! Á sumum stöðum getur þú fundið hirðingja samfélög sem lifa enn eftir gömlu hefðunum. Mundu eftir því að smakka shubat og prófa Arasan böðin í Panfilov!
8. Botsvana
Þú finnur allt það besta sem Afríka hefur upp á að bjóða í Botsvana. Þar getur þú farið í ævintýralegt safarí í Chobe þjóðgarðinum, kannað grösugar sléttur Okavango Delta og fengið sand á milli tánna í Kalahari eyðimörkinni. Og ekki missa af því að heimsækja Makgadikgadi Pan sem er ein af stærstu saltsléttum heims. Að tjalda undir berum himni á miðri sléttunni er meiriháttar upplifun!
9. Dóminíska lýðveldið
Í Dóminíska Lýðveldinu er auðvelt að halda að maður sé kominn inn í póstkort. Hvítar sandstrendur, pálmatré sem vaggast rólega í vindinum undir heitri sólinni, iðagrænir dalir, dynjandi fossar og há, skógi vaxin fjöll. Og ekki má gleyma ólýsanlegu útsýni yfir hafið, sem hefur að geyma kóralrif, litríka fiska og skjaldbökur. Dreymir þig um að fara í sundföt og liggja í leti í sólstól, fjarri rigningarlöndum norðursins? Þá er Dóminíska Lýðveldið staðurinn fyrir þig.
10. Fiji
Langar þig að upplifa einstaka menningu, afslappað andrúmsloft og fjölbreytta náttúru? Þá er Fiji áfangastaðurinn þinn. Lærðu að kafa, farðu í ævintýralega siglingu og njóttu sólarinnar á hvítri sandströnd. Þar sem Fiji samanstendur á yfir 300 eyjum er eyja hopp frábær leið til að kanna landið - fjárfestu í hop on / hop off miða!