Lífið er of stutt til að fara ekki í safarí í Namibíu! Það er ólýsanleg tilfinning að keyra um þjóðgarðana og sjá þúsundir villtra dýra í sínu náttúrulega umhverfi. Þú upplifir heilan heim sem ómögulegt er að ímynda sér áður en maður sér hann með eigin augum; slétturnar, dýralífið og kyrrðin. Þú getur farið í safaríferð sem er nokkrir dagar eða margar vikur - þitt er valið! Gistingin er einnig þitt val; viltu lúxus eða tjald? Við mælum með tjaldinu, þú kemst ekki í meiri nálægð við villta náttúruna.
Ef þú ert í vafa um hvaða ferð hentar þér best mælum við með að þú hafir samband við okkur og fáir frekari upplýsingar og aðstoð við að bóka.