Whitsunday eyjarnar eru þekktar fyrir einstaka náttúrufegurð en þar finnur þú hvítar strendur og sægrænt haf. Það eru um 74 eyjar sem mynda eyjaklasann og eru þær flestar óbyggðar.
Hvað á að gera og sjá á Whitsunday eyjunum?
Á siglingu þinni munt þú alveg bókað fara á Whitehaven ströndina enda er það staðurinn sem mátt ekki sleppa. Whitehaven ströndin er um 7km löng og staðsett á Whitsunday eyjunni sem er sú stærsta í klasanum. Tær sjór, hvítur sandur og allt þetta sjávarlíf er alveg einstök og mun heilla alla! Þegar þú sérð ströndina munt þú um leið skilja af hverju hún er ein mest ljósmyndaða strönd Ástralíu.
Gakktu upp á Tounge Point en þar eru útsýnispallar þar sem þú munt fá einstak útsýni yfir eyjuna og tækifæri til að taka frábærar myndir. Mundu bara að stoppa og njóta líka útsýnisins sem er engu öðru líkt!
Airlie Beach
Flestar ferðir um Whitsunday eyjarnar og Whitehaven ströndina fara frá Airlie Beach sem er á meginlandi Ástralíu. Stoppaðu þar í eina til tvær nætur og upplifðu hina skemmtilegu stemningu sem myndast oft meðal bakpokaferðalanganna.
Hvenær er best að fara?
Veðurfarið er heitt og notalegt allt árið um kring. Ef þú villt forðast stingskötur og marglyttur þá skaltu ekki fara yfir sumartímann (október - maí).
Ferðaráð
Athugaðu hvort það séu ekki örugglega snorkl græjur um borð, annars verður þú að koma með þínar eigin. Whitsunday eyjarnar eru staðsettar við stærsta kóralrif í heimi. Þarna eru mörg tækifæri fyrir þig til að hoppa út í vatnið og skoða hið einstaka sjávarlíf. Við mælum með að þú farir i nokkurra daga siglinu um svæðið til að fá sem bestu upplifunina.