Portúgal er ótrúlega fallegt land. Náttúran er fjölbreytt, strendurnar fallegar og öldurnar frábærar fyrir sörf. Ekki er svo verra að maturinn er æðislegur! Hvað annað þarf maður annars?
Í skipulögðum ferðum í Portúgal munt þú upplifa litlu þorpin, sjá ótrúlegt útsýni yfir Atlantshafið og kynnast heimafólkinu á annan hátt.
Fá meiri upplýsingar
Af hverju ættir þú að fara í skipulagða ferð í Portúgal?
Í fyrsta lagi sparar þú þér mikinn tíma þegar kemur að því að skipuleggja ævintýrið þitt. Í öðru lagi færðu að upplifa nokkrar af hápunktum Portúgals ásamt öðrum bakpokaferðalöngum. Ekkert slær við kvöldbjórnum með hópnum þínum sem samanstendur af fólki allstaðar að úr heiminum.
Hver fer í skipulagða ferð í Portúgal?
Allir! Það er stutta svarið. Við sjáum bæði þá sem eru að ferðast sóló, pör og vini fara saman í þessar skipulögðu ferðir. Það sem allir eiga þó sameiginlegt er forvitni og ævintýraþrá.