Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Við fundum eftirfarandi {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} og {{ category.count + ' ' + (category.count == 1? category.label:category.pluralLabel) }} fyrir '{{ searchTerm }}'
0 Results found
Vilt þú ferðast um heiminn á þinn eigin hátt? Svona gerir þú það:
Við sjáum til þess að ferðaplanið þitt sé ekki út í hött og að þú fáir sem mest út úr peningnum þínum er við deilum okkar ferðareynslu. Þetta er þér allt að kostnaðarlausu og því fylgir engin skuldbinding!
Ferðaleiðin: Heim- Cebu - Bohol - Moalboal - Palawan - Heim
Ath: Þú getur annað hvort sameinað þessa ferð við lengra bakpokaferðalag eða verið bara í þessa daga. Við getum hjálpað þér við að skipuleggja bæði.
Cebu er lífleg borg með annasamt næturlíf. Ef þú vilt hefja ævintýrið þitt á Filippseyjum með drykk í hendinni, þá ertu kominn á réttan stað. Cebu snýst þó ekki aðeins um næturlífið. Þú munt líka finna töfrandi strendur og frábæra snorklunarmöguleika, og ef þú vilt frekar byrja ferðina með afslappaðri stemningu getur Cebu einnig veitt það. Við höfum bókað þig á gott farfuglaheimili fyrstu næturnar áður en alvöru ævintýrið þitt hefst.
Þegar þú er komin/n yfir mestu flugþreytuna ertu tilbúin/n til að byrja að kanna. Í þessari 5 daga ferð muntu fá að kanna Cebu ásamt því að heimsækja nágrannaeyjuna Bohol með súkkulaðihæðunum. Fullt af afþreyingu er innifalin og síðasta daginn kemurðu aftur til Cebu. Þar sem þú heldur áfram ferðinni.
Finndu þína eigin leið frá Cebu til Moalboal á vesturhluta eyjarinnar. Hér höfum við skipulagt skemmtilega dvöl í köfunarmiðstöð, þar sem þú færð PADI vottorðið þitt svo þú sért tilbúin/n til að skoða fallega heiminn undir yfirborðinu. Ef þú ert þegar með skírteini getum við skipulagt framhaldsnámskeið ef þú vilt.
Eftir að þú hefur lært að kafa flýgur þú til Palawan þar sem næstu vikur snúast um að gefa tilbaka til samfélagsins. Við erum í samstarfi við nokkur mjög flott verkefni og þú getur valið annað hvort að kenna ensku eða vinna sem sjálfboðaliði í leikskóla. Lágmarksdvöl er 2 vikur, sem við höfum innifalið í verðinu, en ef þú hefur áhuga á að dvelja lengur hjálpum við þér að koma því í kring. Þegar sjálfboðaliðaverkefninu er lokið, mælum við með að þú eyðir smá tíma í að skoða Palawan áður en þú ferð heim.
Kilroy.OutdatedBrowserBox.Text Kilroy.OutdatedBrowserBox.LinkText
Úbbs - Síðan sem þú reyndir að opna er ekki til. Við vonum að þú finnir það sem þú ert að leita að hér.